Heimasíða Hilmars og Guggu.
Áhugamálin,myndir og fleira.


16.08.2011 11:02

Sumarið 2011

Bætti við nokkrum myndum úr ferðum okkar Guggu í sumar. Maður er allt of latur í blogginu, en sumarið er búið að vera gott og allt gott tekur enda, nú er bara vinna og aftur vinna. Búinn að veiða nokkrar bleykjur og 3 laxa í sumar sem verður geymt upp á veturinn. Nýr meðlimur bættist við í fjölskilduna 12.júní,  er Hera og Sindri Viðar eignuðust yndislega stúlku Emilíu Rós, sem skýrð verður á afmælisdag Sindra og mömmu hans nú 20.ágúst. Og auðvitað verður farið suður til að vera viðstaddur. Amman búin að vera að baka og baka fyrir veisluna svo vinir og vandamenn fái nú eitthvað í gogginn. Farinn að hlakka til gæsaveiðtímans og svo tekur rjúpan við. Alltaf eitthvað til að glejast yfir og hlakka til. Nóg að sinni.
  • 1
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 7
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 25068
Samtals gestir: 9437
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:33:12